Monday, January 6, 2014

Plakatagerð

Í lok nóvember komu til okkar í skólann tveir nýútskrifaðir grafískir hönnuðir sem gestakennarar. Þeir kynntu okkur fyrir plakatagerð og notkun ,,grids" og við fengum það verkefni að hanna fimm ný plaköt á dag í þrjá daga. Allir fengu úthlutaðann jazztónlistarmann og eitt lag með honum sem átti að vera aðal titill plakatsins. Ég fékk tónlistamanninn Chick Corea og lagið hans Fickle Funk. Svo var okkur einnig úthlutað almennar upplýsingar um tónleikana sem áttu líka að fara á plakatið. Fyrsta daginn máttum við aðeins vinna útfrá textanum og svörtum og hvítum og grunnformunum, þríhyrning, kassa og hring. Svo fengum við einnig þrjár leturgerðir sem við máttum bara nota. 
Dag tvö bættist svo við þetta, við máttum nota einn lit og eina mynd og svo bættust við enn fleiri leturgerðir sem við höfðum val um að nota.
Þriðja og seinasta daginn bættust við nokkrar fleiri leturgerðir og við máttum nota eins mikið af litum og myndum og við vildum. Mér fannst þetta alveg fáránlega skemmtilegt verkefni og að fá að vinna i indesgn og illustrator og photoshop alla vikuna var snilld. Efstu þrjú plakötin hérna fyrir neðan eru svo þau þrjú plaköt sem ég valdi til að sýna á föstudeginum, eitt frá hverjum deginum.








1 comment: