Monday, January 13, 2014

Óvart lokaverkefnið mitt

Seinustu tvær vikurnar í Danmörku fengum við til þess að gera lokaverkefnið okkar. Upphaflega ætlaði ég að handteikna einhverskonar illustrations og setja saman í collage... meikaði allt sens í hausnum mínum. En eftir eina og hálfa viku var ég enn bara með höndina. Svo ég byrjaði óvart á þessu mósaík verkefni en þetta er bara eitthvað sem mig hefur langað að prufa. Myndin er kannski ekkert spes (stal henni af hel-looks.com) - en ég held að hún gæti komið vel út á A1 plakati. En svo er reyndar annað mál hvort ég nái einhverntíman að klára hana. Úff. Árangurinn hingað til eru fjórar nætur og einhver dagvinna líka...












No comments:

Post a Comment