Friday, January 3, 2014

Just Let Go


Ég er nýkomin heim frá Danmörku þar sem ég var í lýðháskóla í fimm mánuði að læra grafíska hönnun. Þetta er uppáhaldsverkefnið mitt úr skólanum. Hér kemur smá texti sem ég skrifaði við myndina þegar ég birti hana á facebook.

Í seinustu viku gerði ég þetta verkefni. 

Þetta er hugmynd sem mig hefur langað að gera mjög lengi, innblásin af grafískum hönnuði sem heitir Stefan Sagmeister. Mér þykir mjög vænt um þetta verkefni og það hefur mjög mikla þýðingu fyrir mig. Ég valdi þessa setningu ,,Just let go" af mjög persónulegum ástæðum, stundum þarf maður bara að sleppa takinu á hlutum í lífinu, hugsunum og tilfinningum. 
Ég gerði þetta verkefni sérstaklega fyrir sjálfa mig.

Ég valdi staðsetningarnar fyrir myndirnar vegna þess að þær tákna allar breytingar og nýja tíma.


No comments:

Post a Comment