Wednesday, January 15, 2014
Monday, January 13, 2014
Óvart lokaverkefnið mitt
Seinustu tvær vikurnar í Danmörku fengum við til þess að gera lokaverkefnið okkar. Upphaflega ætlaði ég að handteikna einhverskonar illustrations og setja saman í collage... meikaði allt sens í hausnum mínum. En eftir eina og hálfa viku var ég enn bara með höndina. Svo ég byrjaði óvart á þessu mósaík verkefni en þetta er bara eitthvað sem mig hefur langað að prufa. Myndin er kannski ekkert spes (stal henni af hel-looks.com) - en ég held að hún gæti komið vel út á A1 plakati. En svo er reyndar annað mál hvort ég nái einhverntíman að klára hana. Úff. Árangurinn hingað til eru fjórar nætur og einhver dagvinna líka...
Monday, January 6, 2014
Plakatagerð
Í lok nóvember komu til okkar í skólann tveir nýútskrifaðir grafískir hönnuðir sem gestakennarar. Þeir kynntu okkur fyrir plakatagerð og notkun ,,grids" og við fengum það verkefni að hanna fimm ný plaköt á dag í þrjá daga. Allir fengu úthlutaðann jazztónlistarmann og eitt lag með honum sem átti að vera aðal titill plakatsins. Ég fékk tónlistamanninn Chick Corea og lagið hans Fickle Funk. Svo var okkur einnig úthlutað almennar upplýsingar um tónleikana sem áttu líka að fara á plakatið. Fyrsta daginn máttum við aðeins vinna útfrá textanum og svörtum og hvítum og grunnformunum, þríhyrning, kassa og hring. Svo fengum við einnig þrjár leturgerðir sem við máttum bara nota.
Dag tvö bættist svo við þetta, við máttum nota einn lit og eina mynd og svo bættust við enn fleiri leturgerðir sem við höfðum val um að nota.
Þriðja og seinasta daginn bættust við nokkrar fleiri leturgerðir og við máttum nota eins mikið af litum og myndum og við vildum. Mér fannst þetta alveg fáránlega skemmtilegt verkefni og að fá að vinna i indesgn og illustrator og photoshop alla vikuna var snilld. Efstu þrjú plakötin hérna fyrir neðan eru svo þau þrjú plaköt sem ég valdi til að sýna á föstudeginum, eitt frá hverjum deginum.
Sunday, January 5, 2014
Parallel fanzine
Myndaþáttur sem ég gerði í skólanum eina valvikuna. Við áttum að útbúa okkar eigið fanzine (heimatilbúið tímarit) og áttum að vinna útfrá orðinu parallel. Þetta var pínu gert á seinustu stundu þar sem ég var ekki alveg að finna mig í þessu verkefni alveg frá byrjun. En ég bað Ýr að vera módelið mitt og við fórum út eitt kvöldið og ég tók þessar myndir af henni. Ég vildi vinna útfrá þeim samhliða línum sem manneskjan getur myndað með líkamanum sínum. Ég vildi hafa myndirnar mjög hráar og ég er mjög ánægð með útkomuna.
Ég gat því miður ekki notaði allar þessar myndir í fanzine-ið þar sem það mátti aðeins vera ákveðinn fjöldi blaðsíðna. En svona leit þetta út í tímaritinu (og að sjálfsögðu hafði ég textann á íslensku svo Dönunum finndist textinn lúkka meira kúl).
Hér eru svo nokkrar misgóðar myndir af tímaritinu eins og það leit út.
P.s. takk Ýr þú ert snilli.
Gamall myndaþáttur úr Muninn.
Innblásinn af tískusýningum f/w 2011 minnir mig.
Teiknað með penna og svo bætt inní myndina í photoshop.
Friday, January 3, 2014
Just Let Go
Ég er nýkomin heim frá Danmörku þar sem ég var í lýðháskóla í fimm mánuði að læra grafíska hönnun. Þetta er uppáhaldsverkefnið mitt úr skólanum. Hér kemur smá texti sem ég skrifaði við myndina þegar ég birti hana á facebook.
Í seinustu viku gerði ég þetta verkefni.
Þetta er hugmynd sem mig hefur langað að gera mjög lengi, innblásin af grafískum hönnuði sem heitir Stefan Sagmeister. Mér þykir mjög vænt um þetta verkefni og það hefur mjög mikla þýðingu fyrir mig. Ég valdi þessa setningu ,,Just let go" af mjög persónulegum ástæðum, stundum þarf maður bara að sleppa takinu á hlutum í lífinu, hugsunum og tilfinningum.
Ég gerði þetta verkefni sérstaklega fyrir sjálfa mig.
Halló,
Mig hefur lengi langað að búa til síðu með verkunum mínum og núna læt ég af því verða. Hingað til hef ég aðeins sett smá part af dundinu mínu og öðrum hlutum inná facebook en mig langar að vera duglegri að deila með ykkur og jafnvel útskýra verkin betur.
Kannski læt ég líka eitt og eitt lag fylgja með inná síðuna af því bara.
Sóley
P.s. sorrymemmig ef það kemur inn hruna af dóti hérna inn í byrjun. Það er bara helling sem mig langar að deila.
Kannski læt ég líka eitt og eitt lag fylgja með inná síðuna af því bara.
Sóley
P.s. sorrymemmig ef það kemur inn hruna af dóti hérna inn í byrjun. Það er bara helling sem mig langar að deila.
Subscribe to:
Comments (Atom)





































