Tuesday, May 6, 2014

Monday, March 31, 2014

Vorið Vaknar

Fékk þann heiður að fá að gera plakat fyrir uppsetningu LMA 2014 á Vorið Vaknar. 
Vorið Vaknar er frumsýnt fimmtudaginn næstkomandi, 3. apríl. 
Sjáumst á frumsýningunni!
Hægt er að nálgast miða á midi.is






Wednesday, March 12, 2014

Sunday, March 2, 2014

Still/Dromos

Gerði þetta einhvern tíman seinasta haust - var að finna þetta í tölvunni. 


Wednesday, February 26, 2014

Pixluð tískusýning

Þetta er búið að vera smá dund sem ég er búin að vinna smá og smá í undanfarinn mánuð. 
Rakst á þessar myndir af tískusýngu Maison Martin Margiela s/s14. 
Fannst lúkkin á svo flott að ég varð að gera eitthvað úr þeim - þetta er allavega ein útkoman.


Tuesday, February 25, 2014

Meiri plakatagerð

Var beðin um að gera plakat fyrir árshátíðarball Síðuskóla. Það var snilld. 
Fyrra plakatið varð fyrir valinu - mér þykir samt sjálfri mjög vænt um hitt.



Sunday, February 9, 2014

Sunnudags

Reyndar er gerði ég þessa konu einhverntíman seinasta haust en hún er eitthvað svo rosalega 
buguð að hún á vel við daginn í dag. Plakatið fyrir neðan gerði ég svo í seinustu viku.




Og eitt sunnudagslag fylgir með.


Monday, January 13, 2014

Óvart lokaverkefnið mitt

Seinustu tvær vikurnar í Danmörku fengum við til þess að gera lokaverkefnið okkar. Upphaflega ætlaði ég að handteikna einhverskonar illustrations og setja saman í collage... meikaði allt sens í hausnum mínum. En eftir eina og hálfa viku var ég enn bara með höndina. Svo ég byrjaði óvart á þessu mósaík verkefni en þetta er bara eitthvað sem mig hefur langað að prufa. Myndin er kannski ekkert spes (stal henni af hel-looks.com) - en ég held að hún gæti komið vel út á A1 plakati. En svo er reyndar annað mál hvort ég nái einhverntíman að klára hana. Úff. Árangurinn hingað til eru fjórar nætur og einhver dagvinna líka...












Monday, January 6, 2014

Plakatagerð

Í lok nóvember komu til okkar í skólann tveir nýútskrifaðir grafískir hönnuðir sem gestakennarar. Þeir kynntu okkur fyrir plakatagerð og notkun ,,grids" og við fengum það verkefni að hanna fimm ný plaköt á dag í þrjá daga. Allir fengu úthlutaðann jazztónlistarmann og eitt lag með honum sem átti að vera aðal titill plakatsins. Ég fékk tónlistamanninn Chick Corea og lagið hans Fickle Funk. Svo var okkur einnig úthlutað almennar upplýsingar um tónleikana sem áttu líka að fara á plakatið. Fyrsta daginn máttum við aðeins vinna útfrá textanum og svörtum og hvítum og grunnformunum, þríhyrning, kassa og hring. Svo fengum við einnig þrjár leturgerðir sem við máttum bara nota. 
Dag tvö bættist svo við þetta, við máttum nota einn lit og eina mynd og svo bættust við enn fleiri leturgerðir sem við höfðum val um að nota.
Þriðja og seinasta daginn bættust við nokkrar fleiri leturgerðir og við máttum nota eins mikið af litum og myndum og við vildum. Mér fannst þetta alveg fáránlega skemmtilegt verkefni og að fá að vinna i indesgn og illustrator og photoshop alla vikuna var snilld. Efstu þrjú plakötin hérna fyrir neðan eru svo þau þrjú plaköt sem ég valdi til að sýna á föstudeginum, eitt frá hverjum deginum.








Sunday, January 5, 2014

Parallel fanzine

Myndaþáttur sem ég gerði í skólanum eina valvikuna. Við áttum að útbúa okkar eigið fanzine (heimatilbúið tímarit) og áttum að vinna útfrá orðinu parallel. Þetta var pínu gert á seinustu stundu þar sem ég var ekki alveg að finna mig í þessu verkefni alveg frá byrjun. En ég bað Ýr að vera módelið mitt og við fórum út eitt kvöldið og ég tók þessar myndir af henni. Ég vildi vinna útfrá þeim samhliða línum sem manneskjan getur myndað með líkamanum sínum. Ég vildi hafa myndirnar mjög hráar og ég er mjög ánægð með útkomuna.










Ég gat því miður ekki notaði allar þessar myndir í fanzine-ið þar sem það mátti aðeins vera ákveðinn fjöldi blaðsíðna. En svona leit þetta út í tímaritinu (og að sjálfsögðu hafði ég textann á íslensku svo Dönunum finndist textinn lúkka meira kúl).



Hér eru svo nokkrar misgóðar myndir af tímaritinu eins og það leit út.





P.s. takk Ýr þú ert snilli.